Hér vil ég vera
Hér vil ég vera er fjórða skáldsaga Guðrúnar og sjálfstætt framhald af Hann kallar á mig. Hana má lesa án þess að hafa lesið fyrri bókina.
Bækurnar
Þrjár skáldsögur, hver um sína dökku hlið samfélagsins, og ein væntanleg.
Umsagnir
„Heimildaöflun höfundar skilar sér í trúverðugum söguþræði sem dregur lesanda inn í flókinn og óreiðukenndan hugarheim aðalpersónunnar Rósu.“
„Veluppbyggður og spennandi sálfræðitryllir. Hér er lesandinn leiddur áfram um völundarhús huga söguhetjunnar og það er ekki alltaf auðvelt að greina á milli hvað er raunverulegt og hvað ekki. Vel unnin bók.“
„Guðrún Sigríður tekur á mikilvægum málefnum og sálarflækjum, ást og missi, viðurkenningu og ofbeldi, geðhvörfum og hugarburði, draumum og raunveruleika.“
„Mýtan um hamingjusömu vændiskonuna er jarðsett í bókinni.“
„Rödd vændiskonunnar er sérstaklega vel útfærð og er rödd sem samfélagið þarf að heyra.“
„Sagan er í senn læsileg, forvitnileg og spennandi.“
„Frábær bók og auðvelt fyrir alkahólista að tengja.“
„Einstaklega áhrifamikil og vel unnin á allan hátt.“
Að baki verkunum
Þjálfun, heimildavinna og viðurkenningar sem verkin byggja á.
Tilnefning til Storytel Awards
Þýðingarstyrkur frá Miðstöð íslenskra bókmennta
Réttarlæknisfræði fyrir rithöfunda
Skáldleg skrif II
Skáldleg skrif I
Les sínar eigin hljóðbækur
Þýdd á ensku
Bókadómar í Morgunblaðinu
Byggt á heimildum
Birt og fjallað um í
- Morgunblaðið
- skald.is
- mbl.is
- Sunnudagsmogginn
- DV
- Mannlíf
Um höfundinn
Guðrún Sigríður Sæmundsen (f. 1982) er íslenskur höfundur. Hún hefur gefið út þrjár skáldsögur: Hann kallar á mig (2015), Andstæður (2018) og Rósu (2021). Sú fjórða, Hér vil ég vera, er væntanleg.
Guðrún er með MSc-gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Grenoble Graduate School of Business í Frakklandi og hefur starfað í fjármálum og ferðaþjónustu. Hún skrifaði pistla í Morgunblaðið og Sunnudagsmoggann.

Pistlar
Guðrún skrifaði pistla í Morgunblaðið og Sunnudagsmoggann.
- „Ég gat fengið hann til að hætta í heróíni en ekki í stelpum“
- „Ég þurfti að hugsa þessi samskipti og mörg önnur upp á nýtt“
- 13,4% af ríkustu einstaklingum heims eru konur
- Cindy Crawford: „Ég gaf frá mér allt vald til hans“
- Eyjamenn „friske og glade“ eins og Danir
- Þarf ég lim til að vera lunkin í fjármálum?



